Mestar breytingar hjá Valsmönnum
Talsverðar breytingar hafa orðið á sumum liðum efstu deildar karla í vetur. Eins og oft áður eru mestu hreyfingarnar hjá Valsmönnum og Fylkismenn koma næstir á eftir.
Minnstar breytingar eru hjá Fram sem teflir fram nánast sama liði og seinni hluta síðasta tímabils, en hefur þó bætt við sig markakóngi 1. deildarinnar.
Helstu breytingar á liðunum fara hér á eftir. Þar eru ekki taldir upp leikmenn sem koma aftur úr láni, eða eftir stutta dvöl erlendis, og ekki heldur þeir sem voru farnir áður en síðasta tímabili lauk.
Þá eru ekki allir orðnir löglegir með nýjum liðum en þeir sem koma erlendis frá mega ekki spila í deildabikarnum fyrr en 22. febrúar. Í sumum tilfellum er ekki búið að ganga frá félagaskiptum en þau verða væntanlega flestöll í höfn fyrir helgina. Þá er víða ekki frágengið hvort erlendir leikmenn sem léku hérlendis síðasta sumar komi aftur eður ei, eða þá hvort aðrir komi í þeirra stað.
Nánar um málið í íþróttablaði Morgunblaðsins í dag.






