Víkingar skelltu Keflvíkingum
Víkingur úr Reykjavík lagði úrvalsdeildarlið Keflavíkur, 4:2, í fyrsta leiknum í deildabikar karla í fótbolta, Lengjubikarnum, í Egilshöllinni í kvöld.
Guðmundur Steinarsson skoraði fyrsta mark mótsins strax á 9. mínútu, úr vítaspyrnu fyrir Keflvíkinga, og þeir voru 1:0 yfir í hálfleik.
Viktor Jónsson jafnaði fyrir Víkinga á 48. mínútu, 1:1, nýkominn inn á sem varamaður, og Hjörtur Júlíus Hjartarson kom Víkingum í 2:1 á 67. mínútu en þá fylgdi hann eftir þegar Ómar Jóhannsson varði frá honum vítaspyrnu.
Þrjú mörk komu síðan á lokamínútunum. Helgi Sigurðsson, sem fiskaði vítaspyrnuna, kom Víkingi í 3:1 á 87. mínútu en Keflvíkingar svöruðu strax eftir miðjuna, 3:2, og þar var Daníel Gylfason að verki.
Í uppbótartímanum skoraði síðan Viktor sitt annað mark, með hörkuskoti af 25 metra færi upp í markvinkilinn, og tryggði Víkingum sigurinn.







