Góð byrjun Fylkis dugði ekki (myndskeið)
Matthías Guðmundsson reynir að komast hjá tæklingu Davíðs Þórs Ásbjörnssonar leikmanns Fylkis í kvöld. mbl.is/Kristinn Ingvarsson
Fylkir og Valur skildu jöfn 2:2 í 3. riðli Lengjubikarsins í knattspyrnu en leikurinn fór fram í Egilshöllinni í kvöld.
Fylkir fékk óskabyrjun þegar Elís Rafn Björnsson kom þeim yfir á 7. mínútu. Haukur Páll Sigurðsson var þó ekki lengi að jafna metin fyrir Val og staðan því 1:1 eftir 20 mínútur. Jóhann Þórhallsson kom Fylki aftur yfir á 33. mínútu eftir flottan einleik í gegnum vörn Vals.
Aðeins tveimur mínútum síðar jafnaði Andri Fannar Stefánsson metin fyrir Val með góðu skoti. Fylkir gat svo ekki nýtt sér það að Hauki Páli var vikið af velli þegar rétt rúmar 20 mínútur voru til leiksloka.
Það voru Valsmenn sem komust nær því að skora þegar þeir áttu skalla í þverslá.
Leikurinn var sýndur beint á SportTV og á heimasíðu stöðvarinnar má nú sjá tvö síðari mörkin í leiknum, sem og rauða spjaldið:






