Matthías kynntur til leiks hjá Start í dag

Matthías Vilhjálmsson. stækka

Matthías Vilhjálmsson. mbl.is/Ómar Óskarsson

Matthías Vilhjálmsson verður kynntur til leiks sem nýr leikmaður norska B-deildarliðsins Start í dag að því er fram kemur á vef félagsins. Matthías gengst undir læknisskoðun fyrir hádegi og standist hann þá skoðun verður hann kynntur fyrir fréttamönnum.

„Matthías hefur þá eiginleika sem þjálfarinn Mons Ivar vill hafa í sóknarmanni,“ segir Rune Jakobsen á vef Start en Matthías er ekki alveg ókunnugur liði Start því hann var til reynslu hjá félaginu árið 2010.

Fram kemur á vef félagsins að það hafi náð samkomulagi við FH um eins árs lánssamning og eftir það hefur Start möguleika á að semja við Matthías til frambúðar.

Start féll úr norsku úrvalsdeildinni síðasta haust en félagið hefur flakkað nokkuð á milli deilda undanfarin ár. Liðið er frá Kristiansand, syðsta bæ Noregs. Fjórir Íslendingar hafa spilað með liðinu, Haraldur Freyr Guðmundsson Keflvíkingur var þar síðast á lokaspretti síðasta tímabils, og Guðjón Þórðarson þjálfaði liðið í nokkra mánuði árið 2002.

Þjálfari Start er Mons Ivar Mjelde, fyrrverandi leikmaður Brann, Lilleström, Bryne og Austria Vín, en hann var þjálfari Brann 2003-2008 og var þar með hóp íslenskra leikmanna undir sinni stjórn.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Íþróttir, Pepsi-deildin — Fleiri fréttir

Í dag

Í gær

Laugardaginn 26. maí

Föstudaginn 25. maí

Fimmtudaginn 24. maí

Miðvikudaginn 23. maí

Þriðjudaginn 22. maí

Mánudaginn 21. maí

Sunnudaginn 20. maí


finnur.is