Sverrir: Líst vel á ÍBV
Knattspyrnumaðurinn Sverrir Garðarsson, sem í vikunni komst að samkomulagi við FH um starfslokasamning, hafði í dag félagaskipti til ÍBV og mun leika sinn fyrsta leik með liðinu þegar það mætir ÍR í deildabikarkeppninni á sunnudaginn.
Sverrir hefur ekki skrifað undir samning við Eyjamenn heldur bara félagaskiptasamning en á næstu vikum mun hann æfa og spila með ÍBV-liðinu og í kjölfarið mun hann vega það og meta hvort hann taki samningnum sem liggur klár á borðinu og leiki með liðinu á komandi tímabili.
Sverrir hefur ekkert leikið undanfarin tvö tímabil. Hann varð fyrir höfuðmeiðslum á vormánuðum 2010 og tilkynnti að hann væri hættur en hann hóf æfingar að nýju í fyrra. Hann meiddist hins vegar í æfingaferð FH-liðsins síðastliðið vor og gat af þeim sökum ekkert verið með á síðustu leiktíð.
Sverrir er hins vegar byrjaður að æfa á nýjan leik og hefur æft með Eyjamönnum í vikunni og á sunnudaginn klæðist hann búningi liðsins í fyrsta sinn þegar það mætir ÍR-ingum.
,,Eftir að ég gerði starfslokasamninginn við FH hafa nokkur lið verið í sambandi við mig en ég tók þá ákvörðun að hafa félagaskipti til ÍBV. Mér líst vel á ÍBV-liðið. Það hefur gert flotta hluti og þetta er virkilega gott lið. Mér fannst heiðarlegt gagnvart ÍBV að gera fyrst félagaskiptasamning. Ég hef átt í meiðslum og ég vil taka einn mánuð og sjá hvernig líkaminn bregst við og hver líkamleg geta mín verður. Eftir þennan tíma munum við setjast niður og meta það hvort við gerum samning eða ekki,“ sagði Sverrir við mbl.is í kvöld.
Sverrir er 28 ára gamall öflugur varnarmaður sem er alinn upp hjá FH. Hann hefur leikið samtals 56 leiki með FH-ingum í efstu deild og þá lék hann í nokkur ár með sænska liðinu Sundsvall. Hann á að baki einn leik með íslenska A-landsliðinu en hann tók þátt í 3:0 tapi Íslendinga gegn Dönum á Parken 2007. Þá á hann leiki með öllum yngri landsliðunum.






