Íþróttir
|
Pepsi-deildin
| mbl
| 18.2.2012
| 15:00
| Uppfært
16:07
Eggert Kári með tvö gegn Tindastóli
ÍA vann í dag öruggan sigur á fyrstudeildarliði Tindastóls í 2. riðli A-deildar Lengjubikars karla í knattspyrnu, 4:1, er liðin áttust við í Akraneshöllinni.
Eggert Kári Karlsson skoraði tvennu fyrir ÍA, Mark Doninger eitt og Andri Adolphsson það fjórða. Fannar Örn Kolbeinsson gerði mark gestanna. Upplýsingar um markaskorara voru fengnar á síðu fótbolta.net.
Kári Ársælsson lék sinn fyrsta leik með Skagamönnum en hann gekk nýverið til liðs við þá frá Breiðabliki.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin






