Framarar áfram á sigurbraut

Kristinn Ingi Halldórsson í leik með Fram síðasta sumar. stækka

Kristinn Ingi Halldórsson í leik með Fram síðasta sumar. mbl.is/Eggert

Fram vann í dag 2:0-sigur á Selfossi í fyrsta leik liðanna í 1. riðli A-deildar Lengjubikars karla í knattspyrnu. Þeir bláklæddu halda því áfram þar sem frá var horfið í Reykjavíkurmótinu þar sem þeir urðu meistarar.

Kristinn Ingi Halldórsson kom Fram yfir á 13. mínútu eftir sendingu Stevens Lennons og Samuel Hewson innsiglaði sigurinn í blálokin með marki úr aukaspyrnu frá miðju vallarins er hann nýtti sér það að Jóhann Ólafur Sigurðsson, markvörður Selfyssinga, var kominn langt frá marki sínu.

Selfyssingar skoruðu mark í seinni hálfleik en það var dæmt af vegna rangstöðu.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Íþróttir, Pepsi-deildin — Fleiri fréttir

Í dag

Í gær

Laugardaginn 26. maí

Föstudaginn 25. maí

Fimmtudaginn 24. maí

Miðvikudaginn 23. maí

Þriðjudaginn 22. maí

Mánudaginn 21. maí

Sunnudaginn 20. maí


finnur.is