Íþróttir
|
Pepsi-deildin
| mbl
| 18.2.2012
| 18:41
| Uppfært
20:00
Markalaust hjá FH og Grindavík
Ekkert mark var skorað þegar FH og Grindavík mættust í 3. riðli A-deildar Lengjubikars karla í knattspyrnu í dag. Í sama riðli vann Þór hins vegar 2:1-sigur á liði Hattar frá Egilsstöðum í Fjarðabyggðarhöllinni á Reyðarfirði en bæði þessi lið leika í 1. deild í sumar.
Sveinn Elías Jónsson og Sigurður Marinó Kristjánsson skoruðu mörk Þórs en Stefán Þór Eyjólfsson svaraði fyrir Hött.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin






