Íþróttir
|
Pepsi-deildin
| mbl
| 19.2.2012
| 17:15
Tryggvi skoraði tvö gegn ÍR
Tryggvi Guðmundsson skoraði tvívegis fyrir Eyjamenn í dag þegar þeir lögðu ÍR-inga að velli, 4:2, í deildabikar karla í knattspyrnu en leikur liðanna fór fram í Egilshöllinni.
Þórarinn Ingi Valdimarsson og Aaron Spear skoruðu hin tvö mörk ÍBV sem var komið í 4:1 eftir klukkutíma leik. Guðjón Gunnarsson og Andri Björn Sigurðsson skoruðu mörk ÍR-inga.
Þetta var fyrsti leikur liðanna í mótinu og þriðji leikurinn í 2. riðli. Áður vann Víkingur R. sigur á Keflavík, 4:2, og ÍA vann Tindastól, 4:1. Leikur KA og Stjörnunnar hófst klukkan 16 á Akureyri.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin






