Valskonur Reykjavíkurmeistarar (myndskeið)

Rakel Logadóttir skoraði eitt markanna. stækka

Rakel Logadóttir skoraði eitt markanna. mbl.is/Golli

Valskonur urðu í kvöld Reykjavíkurmeistarar í knattspyrnu þegar þær sigruðu Þrótt, 5:0, í síðasta leik sínum í mótinu. Valur fékk þar með 12 stig í fjórum leikjum en Fylkir og Fjölnir eru bæði með 6 stig og mætast í lokaleik mótsins annað kvöld.

Svava Rós Guðmundsdóttir kom Val yfir á 19. mínútu með hörkuskoti og Laufey Björnsdóttir bætti við marki á 30. mínútu þegar hún lyfti boltanum laglega yfir markvörð Þróttar, 2:0.

Rakel Logadóttir skoraði þriðja markið á 64. mínútu þegar hún brunaði inní vítateiginn og lyfti boltanum uppundir þverslána, og Kristín Ýr Bjarnadóttir það fjórða úr vítaspyrnu á 84. mínútu. Þær Rakel og Kristín komu báðar inn á sem varamenn í hálfleik.

Laufey skoraði síðan sitt annað mark undir lok uppbótartímans, 5:0, með föstu skoti fyrir utan vítateig.

Leikurinn var sýndur beint á SportTV og á heimasíðu stöðvarinnar má nú sjá mörkin fimm.

Mörkin úr Þróttur - Valur.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Íþróttir, Pepsi-deildin — Fleiri fréttir

Í dag

Í gær

Laugardaginn 26. maí

Föstudaginn 25. maí

Fimmtudaginn 24. maí

Miðvikudaginn 23. maí

Þriðjudaginn 22. maí

Mánudaginn 21. maí

Sunnudaginn 20. maí


finnur.is