Íþróttir
|
Pepsi-deildin
| mbl
| 20.2.2012
| 23:38
Fylkir náði öðru sætinu (myndskeið)
Fylkir sigraði Fjölni, 3:1, í lokaleik Reykjavíkurmóts kvenna í knattspyrnu í kvöld en það var um leið hreinn úrslitaleikur um annað sætið í mótinu.
Valur fékk 12 stig, Fylkir 9, Fjölnir 6, KR 3 og Þróttur rak lestina með 3 stig.
Regína Einarsdóttir kom Fjölni yfir en Rúna Sif Stefánsdóttir, Heiða Dröfn Antonsdóttir og Rakel Jónsdóttir svöruðu fyrir Árbæinga og tryggðu þeim sigurinn.
Leikurinn var sýndur beint á SportTV og á heimasíðu stöðvarinnar má sjá mörkin úr leiknum.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin






