Hólmfríður og Kristín til Noregs

Hólmfríður Magnúsdóttir. stækka

Hólmfríður Magnúsdóttir. mbl.is/Ómar

Knattspyrnukonurnar Hólmfríður Magnúsdóttir og Kristín Ýr Bjarnadóttir hafa samið við norska félagið Avaldsnes um að leika með því á komandi keppnistímabili. Hólmfríður staðfesti þetta við mbl.is fyrr í kvöld.

Avaldsnes leikur í B-deildinni í Noregi en hefur sett mikinn kraft í að komast uppí úrvalsdeildina. Þjálfarinn Tor Martin Hegrenes segir í viðtali við h-avis.no í Haugesund að með þessu sé búið að ganga endanlega frá leikmannahópi liðsins fyrir tímabilið sem hefst 14. apríl.

Hólmfríður hefur leitað sér að liði undanfarið eftir að hætt var við keppni í bandarísku atvinnudeildinni á þessu ári en þar var hún á samningi hjá Philadelphia Independence. Hún lék með Val seinni hluta síðasta tímabils.

Kristín hefur verið aðal markaskorari Vals undanfarin ár og hefur skorað 98 mörk í 115 leikjum fyrir liðið í efstu deild.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Íþróttir, Pepsi-deildin — Fleiri fréttir

Í dag

Í gær

Laugardaginn 26. maí

Föstudaginn 25. maí

Fimmtudaginn 24. maí

Miðvikudaginn 23. maí

Þriðjudaginn 22. maí

Mánudaginn 21. maí

Sunnudaginn 20. maí


finnur.is