Fram lagði Íslands- og bikarmeistara KR

Þorsteinn Már Ragnarsson úr KR og Alan Lowing úr Fram eigast við í leiknum í ... stækka

Þorsteinn Már Ragnarsson úr KR og Alan Lowing úr Fram eigast við í leiknum í kvöld. mbl.is/Ómar

Gott gengi karlaliðs Fram í knattspyrnu heldur áfram en Framarar báru í kvöld sigurorð af Íslands- og bikarmeisturum KR þegar liðin áttust við í Lengjubikarnum í Egilshöllinni.

Samuel Hewson kom Fram yfir á 29. mínútu en mínútu síðar jafnaði Kjartan Henry Finnbogason metin fyrir KR-inga. Hinn eldfljóti Kristinn Ingi Halldórsson skoraði sigurmark Framara á 69. mínútu. Hann náði frákasti eftir að Fjalar Þorgeirsson hafði varið skot frá Steven Lennon.

Framarar hafa þar með unnið báða leiki sína, en þetta var fyrsti leikur KR-inga í mótinu.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Íþróttir, Pepsi-deildin — Fleiri fréttir

Í dag

Í gær

Laugardaginn 26. maí

Föstudaginn 25. maí

Fimmtudaginn 24. maí

Miðvikudaginn 23. maí

Þriðjudaginn 22. maí

Mánudaginn 21. maí

Sunnudaginn 20. maí


finnur.is