Hans: Sætasti sigurinn í sumar

Hans Sævar Sævarsson, aðstoðarþjálfari Breiðabliks, fullyrti að sigur Blika, 1:0, á Valskonum í kvöld hafi verið sá sætasti hjá liðinu í sumar.

Hans svaraði spurningum blaðamanna eftir leikinn þar sem Hlynur Svan Eiríksson, þjálfari Blika, var í einhverskonar sjálfskipuðu fjölmiðlabanni sem var ekki nánar útskýrt.

Blikastúlkur hefðu getað skorað fleiri mörk í fyrri hálfleik en Hans var ánægður með vinnusemi liðsins og fagnaði því að ná í öll þrjú stigin í kvöld.

Sigurinn lyfti Blikum upp í annað sætið eftir átta leiki en Kópavogsstúlkum var spáð titlinum fyrir tímabilið.

Rætt er við Hans Sævar í myndbandinu hér að ofan.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert