Doninger einnig á förum frá ÍA

Doninger er einnig á förum.
Doninger er einnig á förum. mbl.is/Ómar Óskarsson

Skagamenn verða brátt tveimur Bretum fátækari en framherjinn Gary Martin er á leið í KR og þá staðfestir miðjumaðurinn Mark Doninger að hann sé einnig á förum frá Akranesi.

„ÍA hefur samþykkt að leyfa mér að fara frá félaginu. Vonandi kemur framtíð mín í fótboltanum í ljós eins fljótt og auðið er,“ segir Doninger á Twitter-síðu sinni.

Doninger kom til ÍA fyrir síðasta tímabil og skoraði níu mörk í 21 leik með liðinu í 1. deildinni í fyrra. Hann hefur spilað sjö af ellefum leikjum ÍA í Pepsi-deildinni í sumar og skorað eitt mark.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert