Sigurður Egill Lárusson, miðjumaður úr Víkingi í Reykjavík, gekk í dag til liðs við Valsmenn og samdi við þá til tveggja ára en þetta kemur fram á vef félagsins.
Sigurður Egill er tvítugur og lék 18 leiki með Víkingum í efstu deild sumarið 2011, og skoraði eitt mark. Hann var síðan í stóru hlutverki hjá þeim í 1. deildinni í ár en þar lék hann 21 leik og skoraði 9 mörk.
Þess má geta að Sigurður er bróðir Dóru Maríu Lárusdóttur, landsliðskonu og fyrirliða Vals.