Ingimundur til liðs við FH

Ingimundur Níels í leik með Fylki gegn FH í sumar.
Ingimundur Níels í leik með Fylki gegn FH í sumar. mbl.is//Árni Sæberg

Ingimundur Níels Óskarsson er genginn í raðir Íslandsmeistara FH frá Fylki. Þetta kemur fram á vef stuðningsmanna félagsins.

Samningur Ingimundar við FH-inga er til tveggja ára en hann var einn af bestu leikmönnum Fylkismanna í sumar og varð markahæsti leikmaður liðsins með 10 mörk.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert