Tillen til liðs við FH

Sam Tillen.
Sam Tillen. mbl.is/Golli

Íslandsmeistarar FH í knattspyrnu hafa fengið annan nýjan leikmann til liðs við sig í dag. Enski leikmaðurinn Samuel Tillen gekk í dag frá tveggja ára samningi við Hafnarfjarðarliðið en fyrr í dag gerði Ingimundur Níels Óskarsson tveggja ára samning við FH.

Tillen kemur til FH-inga frá Fram en hann hefur átt góðu gengi að fagna með Safamýrarliðinu síðustu árin.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert