Haukur til liðs við Fram

Haukur í búningi Fram.
Haukur í búningi Fram. Ljósmynd/Fram.is

Framarar halda áfram að safna liði fyrir átökin í Pepsi-deildinni á næstu leiktíð. Í kvöld gekk Safamýrarliðið frá samningi við Hauk Baldvinsson sem kemur til liðsins frá Breiðabliki.

Haukur er snöggur og lipur kantmaður sem lék 14 leiki með Blikunum í Pepsi-deildinni í sumar en hann var töluvert frá vegna meiðsla.

Haukur er annar leikmaðurinn sem Framarar fá til liðs við sig en á föstudaginn gekk Viktor Bjarki Arnarsson til liðs við félagið frá KR.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert