Jóhann til liðs við Þór

Jóhann Þórhallsson ásamt þjálfaranum Páli V. Gíslasyni.
Jóhann Þórhallsson ásamt þjálfaranum Páli V. Gíslasyni. Ljósmynd/thorsport.is

Knattspyrnumaðurinn Jóhann Þórhallsson er genginn í raðir nýliða Þórs á nýjan leik en hann hefur leikið með Fylkismönnum síðustu árin.

Jóhann, sem er 32 ára gamall og uppalinn Þórsari, hefur nú skrifað undir tveggja ára samning við Akureyrarliðið að því er fram kemur á vef félagsins.

Jóhann skoraði 4 mörk í 14 leikjum með Fylki í Pepsi-deildinni á síðustu leiktíð en hann hefur leikið með Árbæjarliðinu frá árinu 2008. Jóhann hefur einnig leikið með KR, Grindavík og KA í efstu deild sem og Þór þar sem hann hóf ferilinn.


mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert