Tryggvi semur við Fylkismenn

Tryggvi Guðmundsson.
Tryggvi Guðmundsson. Ernir Eyjólfsson

Tryggvi Guðmundsson markaskorarinn mikli frá Vestmannaeyjum mun spila með Fylkismönnum í Pepsi-deildinni á næstu leiktíð.

Tryggvi staðfestir við vefmiðilinn 433.is að hann muni skrifa undir samning við Fylkismenn í kvöld en áætlað er að hann hitti forráðamenn Árbæjarliðsins klukkan 20 þar sem gengið verður frá samningi.

Tryggvi hefur leikið með ÍBV síðustu þrjú tímabilin en hann náði þeim áfanga í sumar að slá markamet Inga Björns Albertssonar í efstu deild. Trryggvi, sem er 38 ára gamall, hefur skorað 129 mörk á ferli sínum í efstu deild með ÍBV, KR og FH.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert