Aldís Kara til Breiðabliks

Aldís Kara Lúðvíksdóttir í kvöld ásamt Borghildi Sigurðardóttur formanni meistaraflokksráðs …
Aldís Kara Lúðvíksdóttir í kvöld ásamt Borghildi Sigurðardóttur formanni meistaraflokksráðs há Breiðabliki.

Aldís Kara Lúðvíksdóttir framherji úr FH hefur skrifað undir tveggja ára samning við knattspyrnudeild Breiðabliks.

Aldís er 18 ára og var markahæsti leikmaður FH í Pepsi-deildinni á síðasta tímabili með 7 mörk í 17 leikjum, og hefur samtals gert 13 mörk í 30 leikjum fyrir Hafnarfjarðarliðið í deildinni. Samtals hefur hún gert 53 mörk í 54 meistaraflokksleikjum með FH.

Aldís á að baki 15 leiki með U17 ára landsliðinu þar sem hún skoraði 18 mörk, sem er markamet í þeim aldursflokki, og og hún hefur einnig leikið 8 leiki með U19 ára landsliðinu.

Aldís Kara Lúðvíksdóttir í leik með FH.
Aldís Kara Lúðvíksdóttir í leik með FH. mbl.is/Golli
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert