Greta Mjöll semur við Blika

Greta Mjöll Samúelsdóttir í leik með landsliði Íslands gegn Danmörku …
Greta Mjöll Samúelsdóttir í leik með landsliði Íslands gegn Danmörku snemma á þessu ári. mbl.is/Algarvephotopress

Knattspyrnukonan Greta Mjöll Samúelsdóttir hefur skrifað undir tveggja ára samning um að leika með Breiðabliki í Pepsi-deild kvenna. Greta var við nám í Bandaríkjunum og lék ekkert með Breiðabliki á síðasta sumri, en spilaði með Aztec MA í bandarísku áhugamannadeildinni.

Hún er flutt heim og ætlar að taka upp þráðinn með uppeldisfélagi sínu á nýjan leik.

Greta Mjöll er 25 ára gömul. Hún hefur spilað með meistaraflokki Breiðabliks frá 16 ára aldri og á að baki 106 leiki með meistaraflokki Breiðabliks sem hún hefur skorað í 60 mörk. Þar af eru 90 leikir og 48 mörk í efstu deild.

Greta Mjöll hefur þar að auki leikið 28 landsleiki með A landsliði Íslands og skorað í þeim þrjú mörk. Hún var á dögunum valin í 42 kvenna úrtakshóp kvennalandsliðsins.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert