Þórarinn á leið til Sarpsborg í láni

Þórarinn Ingi Valdimarsson með boltann í leik gegn Breiðabliki.
Þórarinn Ingi Valdimarsson með boltann í leik gegn Breiðabliki. Ljósmynd/Sigfús Gunnar

Þórarinn Ingi Valdimarsson, miðjumaður úr ÍBV, er á leið til norska úrvalsdeildarliðsins Sarpsborg í láni frá Eyjamönnum. Óskar Örn Ólafsson formaður knattspyrnudeildar ÍBV staðfesti þetta við Fótbolta.net seint í kvöld.

ÍBV samþykkti lánstilboð Sarpsborg með þeim fyrirvara að Þórarinn myndi framlengja samning sinn við félagið. Sarpsborg keypti Guðmund Þórarinsson af ÍBV fyrr í vetur og Haraldur Björnsson ver mark liðsins.

Lið Sarpsborg hafnaði í öðru sæti norsku B-deildarinnar á síðasta ári og vann sér þar með sæti í úrvalsdeildinni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert