Ray Anthony til Keflvíkinga

Ray Anthony Jónsson í leik með Grindavík gegn FH.
Ray Anthony Jónsson í leik með Grindavík gegn FH. mbl.is/Ómar

Ray Anthony Jónsson, knattspyrnumaður úr Grindavík, er genginn til liðs við Keflvíkinga og leikur með þeim í úrvalsdeildinni í sumar en þetta kemur fram á vef Keflavíkur.

Ray, sem er 33 ára gamall, er einn reyndasti leikmaður Grindvíkinga sem féllu úr deildinni í haust en hann er annar leikjahæsti leikmaður félagsins í efstu deild frá upphafi með 182 leiki.

Hann lék á sínum tíma með 21-árs landsliði Íslands en hóf síðan að spila með A-landsliði Filippseyja fyrir tveimur árum og á þar nú að baki 29 landsleiki.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert