Andri Ólafsson til KR

Rúnar Kristinsson þjálfari KR og Andri Ólafsson takast í hendur.
Rúnar Kristinsson þjálfari KR og Andri Ólafsson takast í hendur. kr.is

Eyjamaðurinn Andri Ólafsson mun leika með bikarmeisturum KR á næstu sparktíð í Pepsí-deildinni í knattspyrnu. 

Frá því er greint á heimasíðu KR að Andri hafi gert þriggja ára samning við vesturbæjarliðið en hingað til hefur Andri leikið allan sinn feril með ÍBV.

Andri missti mikið úr síðasta sumar og gat ekki beitt sér fyrr en á miðju sumri vegna meiðsla. Tímabilin þar áður var hann hins vegar fyrirliði Eyjamanna og lykilmaður í uppgangi ÍBV.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert