Hlynur Atli til Þórsara

Hlynur Atli Magnússon í leik með Fram.
Hlynur Atli Magnússon í leik með Fram. mbl.is/Ómar

Knattspyrnumaðurinn Hlynur Atli Magnússon er genginn til liðs við Þórsara á Akureyri og skrifar undir tveggja ára samning við þá um helgina en þetta er staðfest á vef Akureyrarfélagsins.

Hlynur Atli er 22 ára, varnar- eða miðjumaður, sem hefur leikið með Fram allan sinn feril en er laus allra mála þaðan eftir úrskurð samninga- og félagaskiptanefndar KSÍ á dögunum þar sem honum var heimilað að rifta samningi sínum við Safamýrarfélagið.

Hlynur á að baki 52 leiki með Fram í efstu deild, þar sem hann hefur skorað tvö mörk, og hann hefur spilað með U21 og U19 ára landsliðum Íslands.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert