Anna Birna til liðs við Þrótt

Anna Birna Þorvarðardóttir ásamt Vöndu Sigurgeirsdóttur þjálfara Þróttar.
Anna Birna Þorvarðardóttir ásamt Vöndu Sigurgeirsdóttur þjálfara Þróttar. Ljósmynd/trottur.is

Nýliðar Þróttar hafa fengið góðan liðsauka fyrir keppnina í Pepsi-deild kvenna í knattspyrnu í sumar en Anna Birna Þorvarðardóttir er komin til félagsins frá Breiðabliki og hefur skrifað undir tveggja ára samning.

Anna Birna er 23 ára gömul og leikur yfirleitt stöðu miðvarðar. Hún á að baki 84 leiki með Breiðabliki í efstu deild og hefur skorað í þeim 5 mörk en hún hefur leikið allan sinn feril með Kópavogsliðinu, ef undan eru skildar nokkrar vikur síðasta sumar þegar hún var í láni hjá Fram.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert