Stjörnumenn hafa gert eins árs samning við danska knattspyrnumanninn Michael Præst að því er fram kemur á vef stuðningsmanna félagsins, Silfurskeiðin.
Præst er 26 ára gamall varnar- og miðjumaður sem kemur til Stjörnunnar frá danska liðinu Fyn þar sem hann var fyrirliði en hann hefur einnig leikið með Vejle og Kolding.
Præst er annar Daninn sem Stjörnumenn fá til liðs við sig í vetur en á dögunum fékk liðið varnarmanninn Martin Rauschenberg.