Stjarnan bætir við sig leikmanni

Robert Sandnes í leik með Selfossi.
Robert Sandnes í leik með Selfossi. mbl.is/Golli

Stjarnan hefur bætt við sig leikmanni fyrir átökin í Pepsí-deildinni í knattspyrnu í sumar en Norðmaðurinn Robert Sandnes er að ganga í raðir Stjörnunnar samkvæmt netmiðlinum Fótbolti.net.

Sandnes lék með Selfossi í fyrra en liðið féll niður í 1. deild síðasta haust en Logi Ólafsson þjálfari Stjörnunnar stýrði þá Selfyssingum.

Haft er eftir Loga að nánast sé búið að ganga frá samningi við leikmanninn sem getur bæði leikið á miðjunni og í vörninni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert