Sveinbjörn aftur í raðir Þróttara

Sveinbjörn Jónasson (t.h.) í leik með Þrótturum.
Sveinbjörn Jónasson (t.h.) í leik með Þrótturum. mbl.is

Framherjinn Sveinbjörn Jónasson er genginn aftur til liðs við Þrótt í Reykjavík en hann lék með Fram á síðustu leiktíð. Þetta kemur fram á fótbolti.net.

Sveinbjörn skoraði 2 mörk í 16 leikjum með Frömurum í Pepsi-deildinni á síðustu leiktíð en hann fékk fá tækifæri í byrjunarliði Safamýrarliðsins. Sumarið 2011 varð hann markakóngur í 1. deildinni en hann skoraði þá 19 mörk fyrir Þróttara.

Sveinbjörn gerði eins árs samning við Þrótt en hann er 26 ára gamall Seyðfirðingur sem hefur einnig leikið með Fjarðabyggð, Hugin og Grindavík.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert