Elebert samdi við Shamrock Rovers

David Elebert í leik með Fylki gegn FH síðasta sumar.
David Elebert í leik með Fylki gegn FH síðasta sumar. mbl.is/Ómar

Írski knattspyrnumaðurinn David Elebert, sem lék með Fylkismönnum síðasta sumar, samdi í dag til eins árs við írska úrvalsdeildarfélagið Shamrock Rovers.

Elebert, sem er 26 ára gamall, var lykilmaður í vörn Árbæinga síðasta sumar en hann spilaði 19 af 22 leikjum þeirra í Pepsi-deildinni og skoraði eitt mark. Hann kom til Fylkis frá Hamilton í Skotlandi þar sem hann lék í fimm ár.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert