Alen Sutej til Grindvíkinga

Alen Sutej, til vinstri, í baráttu við Tommy Nielsen í …
Alen Sutej, til vinstri, í baráttu við Tommy Nielsen í leik Keflavíkur og FH.

Slóvenski knattspyrnumaðurinn Alen Sutej hefur samið við Grindvíkinga til eins árs og spilar með þeim í 1. deildinni í sumar. Frá þessu er greint á heimasíðu Grindvíkinga.

Sutej er 27 ára gamall varnarmaður sem lék með Keflvíkingum 2009 og 2010 og spilaði þá 43 af 44 leikjum liðsins í úrvalsdeildinni. Hann samdi í kjölfarið við FH-inga en náði ekkert að spila með þeim vegna langvarandi meiðsla og tók sér frí frá fótboltanum til að fá sig góðan af þeim.

Hann hefur æft með Grindvíkingum að undanförnu og fór með þeim í æfingaferð til Spánar í síðustu viku.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert