Ástralskur markvörður til Akureyrar

Kaitlyn Savage.
Kaitlyn Savage.

Íslandsmeistarar Þórs/KA í knattspyrnu kvenna hafa fengið til liðs við sig markvörð frá Ástralíu, Kaitlyn Savage, en hún kemur frá Perth Glory í heimalandi sínu.

Hún á að koma í staðinn fyrir Chantel Jones frá Bandaríkjunum sem gerði það gott í marki Akureyrarliðsins í fyrra og var þá valin besti leikmaður deildarinnar.

Savage er 22 ára gömul og hefur auk þess að spila með Perth Glory leikið með Florida International háskólanum í Bandaríkjunum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert