Enski knattspyrnumaðurinn Dominic Furness er genginn til liðs við Íslandsmeistara FH en hann lék með Tindastóli í 1. deildinni í fyrra.
Furness er 25 ára gamall miðjumaður en hann lék 13 leiki í deildinni með Tindastóli í fyrra og skoraði eitt mark. Bróðir hans, Theodore Furness, fór frá Tindastóli til ÍA um mitt síðasta tímabil en þriðji bróðirinn, Sebastian Furness, varði mark Sauðkrækinganna í fyrra.
Dominic Furness lék með bandarísku háskólaliði áður en hann kom til liðs við Tindastól á síðasta ári.