Rauðar reimar í Lengjubikarnum

Leikmenn Breiðabliks og Vals verða með rauðar reimar í úrslitum …
Leikmenn Breiðabliks og Vals verða með rauðar reimar í úrslitum Lengjubikarsins sem fram fer á Samsung-vellinum í Garðabæ á laugardaginn. mbl.is/Ómar

Special Olympics International hefur staðið að kynningar og fjáröflunarverkefni þar sem fólk er hvatt til þess að styðja starfsemi Special Olympics um allan heim. Verkefnið byggir á sölu á rauðum reimum með merki Special Olympics og Special Olympics á Íslandi tekur nú þátt í verkefninu í fyrsta sinn.  

Knattspyrnusamband Íslands verður fyrsti samstarfsaðili ÍF vegna þessa nýja verkefnis en Special Olympics á Íslandi í hefur fjölmörg ár notið dyggilegs stuðnings KSÍ vegna Íslandsleika Special Olympics og annarra verkefna sem tengjast knattspyrnu fyrir fólk með þroskahömlun.    
 
Fyrsta verkefnið hér á landi er samstarf við KSÍ en KSÍ hefur keypt rauðar reimar fyrir öll lið í úrslitakeppni Lengjubikarsins.  KSÍ mun sjá til þess að allir knattspyrnumenn og konur í úrslitakeppninni noti rauðar reimar í úrslitaleikjunum og leggi þannig mikilvægt lóð á vogarskálarnar í kynningu á þessu nýja verkefni á Íslandi.   

Fyrirhugað er að hafa reimarnar í lausasölu hjá samstarfs- og styrktaraðilum ÍF en einnig er hægt að kaupa reimar á skrifstofu ÍF, verð á reimum er kr. 1000.

Reimum okkar besta.
Reimum okkar besta. Ljósmynd/ÍF
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert