Andrés Már lánaður til Fylkis

Andrés Már Jóhannesson.
Andrés Már Jóhannesson. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Fylkir og norska liðið Haugesund hafa komist að samkomulagi að Fylkismenn fái Andrés Már Jóhannesson að láni til 15. júlí en Andrés gekk í raðir norska liðsins fyrir síðustu leiktíð.

Andrés hefur átt við meiðsli að stríða og hefur ekki jafnað sig af þeim svo hann mun ekki taka þátt í fyrstu leikjum Árbæjarliðsins í Pepsi-deildinni sem hefst um helgina.

Andrés Már er 25 ára gamall og var einn besti leikmaður Fylkismanna áður en hann samdi við Haugesund seinnipart sumarsins 2011.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert