Þórhildur aftur til Eyja

Þórhildur Ólafsdóttir í leik með Þór/KA í fyrra.
Þórhildur Ólafsdóttir í leik með Þór/KA í fyrra. mbl.is/Skapti Hallgrímsson

Þórhildur Ólafsdóttir, fyrrum fyrirliði kvennaliðs ÍBV í knattspyrnu, er gengin til liðs við Eyjakonur á nýjan leik eftir að hafa leikið með Þór/KA á síðasta tímabili.

Þórhildur, sem er 23 ára gömul, lék alla 18 leiki Þórs/KA í Pepsi-deildinni í fyrra og varð Íslandsmeistari með liðinu. Hún spilaði ekki með Akureyrarliðinu í 1. umferðinni en er ekki gjaldgeng með ÍBV í kvöld þegar Eyjaliðið tekur á móti HK/Víkingi.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert