Keflvíkingar hafa fengið liðstyrk í Pepsi-deildinni í fótbolta á lokadegi félagaskipta en Benis Krasniqi er genginn í raðir félagsins og kominn með leikheimild.
Krasniqi hefur spilað á Íslandi frá því 2009, fyrst með KS/Leiftri og Reyni Sandgerði, en hann hefur verið í herbúðum Hauka undanfarin tvö ár.
Hann gæti spilað fyrsta leikinn fyrir Keflavík á morgun þegar liðið sækir nýliða Víkings úr Ólafsvík heim í þriðju umferð Pepsi-deildarinnar.