Eyjamenn geta mætt Rauðu stjörnunni

Hermann Hreiðarsson og lærisveinar þurfa vinna færeyskt lið til að …
Hermann Hreiðarsson og lærisveinar þurfa vinna færeyskt lið til að komast áfram. mbl.is/Ómar

Takist bikarmeisturum KR að leggja FC Glentoran frá Norður-Írlandi að velli í 1. umferð forkeppni Evrópudeildarinnar mæta þeir belgíska stórliðinu Standard Liege í annarri umferð.

Dregið var í aðra umferðina nú rétt í þessu og fær ÍBV veglegt verkefni komist það í aðra umferð því ÍBV mætir Rauðu stjörnunni frá Serbíu takist Eyjamönnum að leggja HB Þórshöfn frá Færeyjum í 1. umferðinni.

Fari Breiðablik áfram úr viðureig sinni gegn Santa Coloma frá Andorra mætir það SK Sturm Graz í annarri umferðinni en það lenti í fjórða sæti austurrísku A-deildarinnar á síðustu leiktíð.

KR myndi byrja á heimavelli en Blikar og Eyjamenn á útivelli. Önnur umferðin verður spiluð 18. og 25. júlí.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert