Sleit í þriðja sinn og missir af EM

Gunnhildur Yrsa Jónsdóttir í baráttu við Alex Morgan í leik …
Gunnhildur Yrsa Jónsdóttir í baráttu við Alex Morgan í leik Íslands og Bandaríkjanna fyrr á þessu ári. Ljósmynd/Algarvephotopress

Landsliðskonan Gunnhildur Yrsa Jónsdóttir varð fyrir miklu áfalli fyrr í mánuðinum þegar hún sleit krossband í hné í þriðja sinn á ferlinum. Gunnhildur var á æfingu með liði sínu, Arna-Björnar, í Noregi þegar hún meiddist 13. júní, degi eftir að hún var valin í landsliðið fyrir æfingaleik við Danmörku ytra. Það var síðasti leikur Íslands fyrir Evrópumótið í knattspyrnu sem hefst í júlí.

„Auðvitað var maður að vonast eftir því að komast á mótið en það er aldrei hægt að vita með það,“ sagði Gunnhildur við Morgunblaðið í gærkvöld en hún var á meðal áhorfenda þegar hennar gamla lið, Stjarnan, sló út Val í bikarkeppninni.

Eins og áður segir er Gunnhildur orðin ansi reynd þegar kemur að krossbandsslitum en hún hefur tvívegis slitið krossband í vinstra hné. Að þessu sinni gaf hægra hnéð sig.

„Hnéð er það gott að ég get farið í aðgerð strax en það er allt uppbókað hér heima svo ég er að kanna möguleikann á því að gera þetta úti. Ég reikna svo alla vega með því að taka endurhæfinguna þar,“ sagði Gunnhildur sem er með samning við Arna-Björnar út árið. Hún reiknar þó ekki með því að spila fótbolta aftur fyrr en í mars eða apríl á næsta ári. Aðspurð hvort hún verði þá enn í Noregi sagði Gunnhildur ómögulegt að segja til um það núna.

„Þetta er vissulega svekkjandi. Hlutirnir voru að ganga ágætlega og maður var byrjaður að fíla sig ágætlega,“ sagði hún.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert