Tottenham búið að bjóða í Eriksen

Christian Eriksen.
Christian Eriksen. AFP

Tottenham hefur gert Hollandsmeisturum Ajax tilboð í danska landsliðsmanninn Christian Eriksen.

Hollenska blaðið De Telegraaf greinir frá því að Tottenham hafi boðið Ajax 8 milljónir evra í Eriksen en sú upphæð jafngildir tæpum 1,3 milljörðum íslenskra króna. Þessu tilboði munu forráðamenn Ajax örugglega hafna en þeir hafa sett 15 milljón evra verðmiða á danska miðjumanninn, sem á 10 mánuði eftir af samningi sínum við Ajax.

Að því er fram kemur í De Telegraaf er líklegt að Ajax taki tilboði Tottenham í leikmanninn hækki Lundúnaliðið tilboðið og bjóði 10 milljónir evra í Eriksen.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert