Hólmbert skoraði aftur fyrir Celtic

Hólmbert Aron Friðjónsson með treyju Celtic.
Hólmbert Aron Friðjónsson með treyju Celtic. Ljósmynd/celticfc.net

Knattspyrnumaðurinn Hólmbert Aron Friðjónsson skoraði í öðrum leik sínum með U20 ára liði skosku meistaranna Celtic. rétt eins og í þeim fyrsta, þegar liðið vann Hearts, 2:0, í deildakeppni unglingaliðanna í dag.

Hólmbert skoraði marki með föstum skalla eftir fyrirgjöf frá vinstri eftir hálftíma leik. Hann var síðan tekinn af velli snemma í seinni hálfleiknum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert