HK vann Þrótt í sjö marka leik

Þorvaldur Örlygsson þjálfari HK fagnaði sigri í fyrsta leik í …
Þorvaldur Örlygsson þjálfari HK fagnaði sigri í fyrsta leik í Lengjubikarnum. mbl.is/Eggert

HK sigraði Þrótt R., 4:3, í fyrsta leiknum í Lengjubikar karla í knattspyrnu sem fram fór í Kórnum í Kópavogi í kvöld.

Þróttarar komust í 2:0 snemma í seinni hálfleik og aftur í 3:2 um miðjan síðari hálfleik eftir að HK hafði jafnað metin. Það var síðan Sverrir Þór Garðarsson sem skoraði sigurmark HK með skalla eftir hornspyrnu - á lokasekúndu leiksins.

Axel Kári Vignisson, Tryggvi Guðmundsson og Guðmundur Atli Steinþórsson skoruðu fyrstu þrjú mörk HK í leiknum en Andri Björn Sigurðsson skoraði tvö mörk fyrir Þrótt og Alexander Veigar Þórarinsson eitt.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert