Skagamenn unnu fyrsta leik dagsins

Andri Adolphsson kom Skagamönnum á bragðið í dag.
Andri Adolphsson kom Skagamönnum á bragðið í dag. Morgunblaðið/Ómar

Keppni í deildabikar karla í knattspyrnu, Lengjubikarnum, hélt áfram í dag þegar Skagamenn tóku á móti BÍ/Bolungarvík í Akraneshöllinni.

Andri Adolphsson kom heimamönnum yfir á 43. mínútu og var staðan 1:0 í hálfleik. Garðar Gunnlaugsson bætti öðru marki við úr vítaspyrnu á 71. mínútu áður en Sindri Kristinsson gulltryggði 3:0-sigur þeirra sex mínútum síðar.

Þetta var fyrsti leikur dagsins í mótinu en keppni heldur áfram síðar í dag.

Markaskorarar eru fengnir frá urslit.net 

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert