KR vann Fylki og mætir FH í undanúrslitum

Gary Martin skoraði fyrsta mark KR-inga.
Gary Martin skoraði fyrsta mark KR-inga. mbl.is/Eggert Jóhannesson

KR tryggði sér í dag sæti í undanúrslitum Lengjubikarkeppninnar í knattspyrnu með því að vinna 3:1 sigur en leikurinn fór fram á gervigrasi KR-inga.

Atli Sigurjónsson og Gary Martin komu KR í 2:0 í fyrri hálfleik. Fylkismenn minnkuðu muninn í upphafi seinni hálfleiks með marki frá Gunnari Erni Jónssyni en Kjartan Henry Finnbogason gulltryggði KR-ingum sigurinn þegar hann skoraði þriðja markið.

Í undanúrslitunum sem verða á mánudaginn mætast annars vegar Þór og Breiðablik og hins vegar Íslandsmeistarar KR og FH.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert