Það verður Breiðablik sem mætir Stjörnunni í úrslitaleiknum í deildabikarkeppni kvenna í knattspyrnu, Lengjubikarnum, en Kópavogsliðið sigraði Þór/KA, 2:0, í undanúrslitunum í Fífunni í kvöld.
Hildur Sif Hauksdóttir skoraði strax í byrjun leiks og Hlín Gunnlaugsdóttir bætti við marki eftir hálftíma, og þar við sat.
Stjarnan vann Val, 2:0, í gær, og úrslitaleikurinn fer fram í Egilshöllinni á sunnudagskvöldið.