Mark eða ekki mark í Garðinum?

Boltinn á marklínu Víðis - eða fyrir innan hana?
Boltinn á marklínu Víðis - eða fyrir innan hana? Ljósmynd/Guðmundur Sigurðsson

Leikmenn og stuðningsmenn Víðis í Garði telja mikinn vafa leika á því hvort sigurmark Valsmanna gegn þeim í Borgunarbikar karla í knattspyrnu í kvöld hefði átt að standa eða ekki.

Indriði Áki Þorláksson trygði Val nauman sigur á 3. deildarliði Víðis, 1:0, með marki á 81. mínútu en Víðismenn telja að boltinn hafi aldrei farið innfyrir marklínuna.

Guðmundur Sigurðsson sendi mbl.is meðfylgjandi mynd af atvikinu. Ekki er hægt að fullyrða á óyggjandi hátt útfrá henni hvort boltinn var inni eða ekki, en svona tæpt stóð það hjá Valsmönnum að sigrast á Víðisliðinu í þessum bikarslag.

Í Morgunblaðinu sem kemur út í fyrramálið er rætt við Rafn Markús Vilbergsson þjálfara og leikmann Víðismanna.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert