Blikar í undanúrslit bikarsins

Blikar eru komnar í undanúrslit bikarsins.
Blikar eru komnar í undanúrslit bikarsins. mbl.is/Árni Sæberg

Breiðablik lagði Valskonur 0:3 á Hlíðarenda og bætast í hóp Fylkis og Stjörnunnar í undanúrslitum Borgunarbikar kvenna.

Aldís Kara Lúðvíksdóttir skoraði fyrsta markið eftir 20 mínútur og skömmu síðar var Jóna Kristín Hauksdóttir búinn að tvöfalda forustuna. Staðan var 2:0 í hálfleik.

Aldís Kara skoraði annað mark sitt á 55. mínútu og gulltryggði sigur Blika sem voru líklegri að bæta við fjórða markinu en Valskonur að minnka muninn.

Í síðasta leik átta liða úrslitum leika Selfoss og ÍBV en sá leikur hófst hálftíma síðar en leikur Vals og Breiðabliks.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert