Íslenski boltinn í beinni

Kristján Gauti Emilsson og félagar í FH sækja Stjörnuna heim …
Kristján Gauti Emilsson og félagar í FH sækja Stjörnuna heim í stórleik dagsins á íslenskri grundu. mbl.is/Styrmir Kári

Þrír leikir eru á dagskrá í Pepsí-deildunum í knattspyrnu í dag. ÍBV tekur á móti Fjölni klukkan 14 í úrvalsdeild karla og klukkan 16 mætast svo efstu lið deildarinnar, Stjarnan og FH, á Samsung-vellinum í Garðabæ. Þá mætast FH og Þór/KA í Pepsí-deild kvenna klukkan 16.

Fylgst verður með leikjunum þremur hér á mbl.is í ÍSLENSKI BOLTINN Í BEINNI en að auki verða beinar textalýsingar úr leik ÍBV og Fjölnir og Stjörnunnar og FH.

Leikir dagsins
14.00  ÍBV - Fjölnir, Pepsí-deild karla
16.00  Stjarnan - FH, Pepsí-deild karla
16.00  FH - Þór/KA, Pepsí-deild kvenna

Fylgjast má með gangi mála, myndum og tístum í ÍSLENSKI BOLTINN Í BEINNI hér á mbl.is.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert